Baldur er einstaklega laginn og skilvirkur þerapisti. Hann er fljótur að greina heildarmyndina og þar af leiðandi skilar hann skjótri framvindu í að kryfja og leysa vandamálin.
Bakgrunnur og reynsla Baldurs eru án efa hans styrkleiki sem birtist ekki síst í einstöku sjórhorni á tilveruna.
Aðferðir Baldurs hafa oftar en ekki opnað augu mín fyrir alveg nýjum víddum í hvernig má takast á við mótlæti og yfirstíga erfiðar hindranir sem kunna að leynast á vegi lífsins.